Fyrirlestur
Þriðjudagsfyrirlestur: Bókin í baðstofunni - upphaf lestrarkennslu á Íslandi

Hvenær
September 8, 2026
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur 1. hæð
Í hádeginu flesta þriðjudaga býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudaginn 8. september er alþjóðadagur læsis, en þá mun Helga Vollertsen sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands fjalla um lestur og læsi Íslendinga fyrr á öldum. Sérstök áhersla verður lögð á tímabilið frá miðri 18. og fram undir miðja 19. öld, og tengist erindið þannig yfirstandandi sýningum Þjóðminjasafnsis sem gefa innsýn í íslenskt samfélag á þessum tíma.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











