Barnamenningarhátíð: Íslensk skrímsli og kynjaverur lifna við

Á Barnamenningarhátíð í Reykjavík sýnir Þjóðminjasafn Íslands verk eftir nemendur í sjöunda bekk Laugalækjarskóla og þriðja, fimmta og sjötta bekk Grandaskóla, sem túlka íslenskar kynjaverur á fjölbreyttan og frumlegan hátt.
Nemendur Laugarlækjaskóla lærðu um kynjaverur í íslenskutímum í vetur. Í framhaldinu fóru þau í vettvangsheimsókn í Þjóðminjasafnið og skoðuðu gamlar heimildir um þekktar kynjaverur á Íslandi t.d. jólaköttinn og dreka. Nemendur fóru í framhaldi af safnheimsókninni í samstarf með list - og verkgreinakennurum skólans að vinna sínar eigin kynjaverur fyrir Barnamenningarhátíð.
Í Grandaskóla lásu nemendur í þriðja, fimmta og sjötta bekk þjóðsögur og texta um ýmis skrímsli og furðuverur í íslenskri náttúru og ímynduðu sér hvernig verurnar litu út án þess að notast við myndir. Í kjölfarið bjuggu þau til verurnar sem skúlptúra eða málverk. Sum verkin þróuðust jafnvel í nýja íslenska vætti og verur.
Verk nemendanna eru sýnd í barna- og fjölskyldurými Þjóðminjasafns Íslands á Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 21. apríl til vikuloka.
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi












