Salarleiga

Í Þjóðminjasafninu á Suðurgötu er fyrirlestrarsalur sem hentar við ýmis tækifæri, svo sem fyrir ráðstefnur, móttökur, fundi og fleira. Fyrirlestrarsalur tekur 56 gesti í sæti.

Fyrirlestrarsalur
Góður salur í fallegu umhverfi sem tekur 56 manns í sæti, einnig er hægt er að bæta við aukastólum. Í salnum er tölva, skjávarpi og tússtafla. Hægt er að taka fyrirlestra upp (hljóð og mynd). Fyrirlesarar koma með efni á minniskubbi (pc-umhverfi).
Starfsfólk veitir alla minni háttar aðstoð, en sé viðveru tæknimanns óskað þarf að panta það sérstaklega. Ef bjóða á upp á veitingar í tengslum við viðburð eru þær bornar fram á gangi við fyrirlestrarsal.
Viltu bóka sal?
Sendu okkur línu ef þú vilt bóka salinn eða spyrjast fyrir. Vinsamlega tilgreindu dagsetningu og tíma dags sem þú óskar eftir að leigja sal. ATH: salurinn er ekki bókaður fyrr en við höfum samband og staðfestum.
Netfang: bokun@thjodminjasafn.is
Fyrirlestrarsalur, virkur dagur (1-2 klst.)
65.000 kr.
Fyrirlestrarsalur, virkur dagur (hver auka klst.)
25.000 kr.
Fyrirlestrarsalur, um helgi (1-2 klst.)
80.000 kr.
Fyrirlestrarsalur, um helgi (hver auka klst.)
35.000 kr.
Upptaka af fyrirlestri
25.000 kr.