HönnunarMars: Ristur - Íslenskar þjóðsögur

Á sýningunni verða prentverk eftir Eystein Þórðarson, sem byggð eru á íslenskum þjóðsögum. Aðferðin er tréristur, ein elsta leiðin sem þekkt er við prentun á lituðum myndlýsingum, margir kannast t.a.m. við japanskar tréristur.
Hvert verk er búið til með því að tálga út tréplötur fyrir ólíka hluta myndarinnar og prenta hvern lit á eftir öðrum. Því eru margar tréplötur unnar til þess að mynda í lokin eitt prentverk. Aðferðin er algerlega laus við tölvur en einungis eru tré, handverkfæri, málning og pappír notuð í ferlinu.
Verkefnið heldur á lofti íslenskum ævintýrum á tímum sífellt meiri áhrifa frá erlendum miðlum og er ætlað að varpa ljósi á sagnaarf Íslendinga með nýstárlegum myndlýsingum. Eysteinn Þórðarson myndskreytir og hönnuður stendur að baki verkefninu en það hlaut styrk hjá Hönnunarsjóði síðastliðið haust.
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi
