Hvenær
2. júní 2026
15. janúar 2027
Hvar
Hornið, 2. hæð

FLÆÐI er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus.

Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né önnur boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og ýmiskonar krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.

Við opnun sýningarinnar heldur hljómsveitin Mógil útgáfutónleika á nýrri plötu sinni, en innblástur hennar er fenginn úr myndum og textum Sölva. Platan ber viðvarandi áhrifum Sölva Helgasonar á listsköpun annarra glöggt vitni og verður tónlist Mógils hluti af sýningunni.

Hljómsveitin Mógil
Heiða Árnadóttir - Söngur
Eiríkur Orri Ólafsson - Trompet
Joachim Badenhorst - Klarinett
Kristín Þóra Haraldsdóttir - Víóla
Hilmar Jensson - Rafgítar

Sýningarstjóri
Karólína Stefánsdóttir  

Sýningartextar
Karólína Stefánsdóttir
Árni Daníel Júlíusson  
Sigurlaug Dagsdóttir  

Yfirlestur
Embla Ýr Bárudóttir  

Ensk þýðing
Anna Yates  

Hönnun
Ármann Agnarsson
Árni Þór Árnason

Forvarsla
Þórir Ingvarsson  
Rannver Hannesson  

Innrömmun
Þórir Ingvarsson

Markaðsstjóri
Ragnheiður Skúladóttir

Viðburðardagskrá
Helga Vollertsen  
Arna B. Bjarnadóttir  
Jóhanna Bergmann

Smíði og uppsetning
Vilhjálmur H. Ólafsson
Gunnar Örn Gunnarsson  
Bræðurnir Baldursson  

Ljósahönnun
Hildiberg
Kristján Kristjánsson

Sýningarvalnefnd
Harpa Þórsdóttir
Ágústa Kristófersdóttir
Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir

Samstarfsaðilar
Hljómsveitin Mógil
Listahátíð í Reykjavík  

Verk Sölva Helgasonar á sýningunni eru í eigu Þjóðminjasafns Íslands.

Sýningarstjóri:
Handrit:
Þýðandi:
Yfirlestur:
Uppsetning:
Prentun ljósmynda:
Innrömmun:
Þórir Ingvarsson
Grafísk hönnun:
Ármann Agnarsson
Prentun texta:
Þakkir:
Samstarfsaðilar:
Mógil og Listahátíð í Reykjavík

Frá sýningunni

No items found.
Safnbúð

Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.