Hvenær
9. maí 2026
9. maí 2027
Hvar
Bogasalur

Einhver ríkulegasti brúðarbúningur í sögu landsins verður nú sýndur í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Búningurinn, faldbúningur sem að mestu leyti er frá síðari hluta 18. aldar, var lengi vel talinn hafa glatast í skipsskaða suður af landinu. Heimildir um hann höfðu varðveist og árið 1866 skrifaði Sigurður Guðmundsson málari: „Þettað forst alt fyrir sunnann land 1809 með Enskum. Þessa hluti hefir landið gjörsam lega mist og nú er öll von úti að menn fái her á landi þesskyns hluti jafn góða eða ef til vill synishorn af þesskyns gripum.“

Síðar kom í ljós að búningurinn hafði ekki farist í skipsskaðanum, en örlög hans voru hins vegar óþekkt. Árið 1963 uppgötvaði Elsa E. Guðjónsson, textíl- og búningafræðingur, að búningurinn væri varðveittur í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sex árum síðar var hann um hríð til sýnis í Þjóðminjasafninu og snýr nú þangað aftur.

Saga þessa búnings er einstök, margslungin og oft á tíðum lyginni líkust.
- Hvernig hafnaði slíkur búningur um borð í ensku skipi sem brann fyrir sunnan land árið 1809?
- Hvernig endaði hann á stóru safni í Englandi?
- Hvað hafði Jörundur hundadagakonungur með það að gera að búningurinn bjargaðist?
- Hvað er faldbúningur og hvað gerir þennan búning að brúðarbúningi?
- Hverjar áttu og báru svo ríkulegan búning?
- Hver var blómstranna móðir? Saumaði hún einhverja hluta búningsins?
- Er eitthvað áþekkt varðveitt hér á landi?

Svörin við þessum spurningum fást á sýningunni BRÚÐARBÚNINGURINN í Þjóðminjasafni Íslands. Þar gefst einstakt tækifæri til að sjá búninginn og kynnast ævintýralegri sögu hans, allt frá 18. öld til dagsins í dag.

Listakonan Kristjana S Williams túlkar örlagaríka sögu brúðarbúningsins með myndrænni framsetningu innan um gripina í sýningarrýminu.

Sýningin verður opnuð 9. maí 2026 og mun standa í eitt ár.

Sýningarstjóri:
Handrit:
Þýðandi:
Yfirlestur:
Uppsetning:
Prentun ljósmynda:
Innrömmun:
Grafísk hönnun:
Prentun texta:
Þakkir:
Samstarfsaðilar:

Frá sýningunni

No items found.
Safnbúð

Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.