FLÆÐI – Sólon Íslandus & Mógil

FLÆÐI ersýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekkundir nafninu Sólon Íslandus.
Verk Sölvahafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs,alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né önnur boð og bönn samfélagsinshafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila oglistforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívarteikningar, texti og ýmiskonar krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmnihans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðastum pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur táknbirtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.
Við opnunsýningarinnar heldur hljómsveitin Mógil útgáfutónleika á nýrri plötu sinni, eninnblástur hennar er fenginn úr myndum og textum Sölva. Platan ber viðvarandiáhrifum Sölva Helgasonar á listsköpun annarra glöggt vitni og verður tónlistMógils hluta af sýningunni.
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi












