Þriðjudagsfyrirlestur: Blómstranna móðir - tindrandi blómstur og lifandi handverk

Í hádeginu flesta þriðjudaga býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudaginn 22. september mun Guðrún Hildur Rosenkjær sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum halda fyrirlestur um handverk Guðrúnar Skúladóttur, sem hlaut sæmdarheitið „Blómstranna móðir“ og tengist stöðu Guðrúnar sem handverkskonu á 18. öld. Hildur mun einnig segja frá vinnunni að baki endurgerðar brúðarbúningsins sem sem hún og Ásmundur Kristjánsson, gullsmiður í Annríki – Þjóðbúningar og skart hafa unnið að í áratugi.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











