Hvenær
April 7, 2026
Kl. 12-12:45
Hvar
Fyrirlestrarsalur

Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.  

Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unninn í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Aðra þriðjudaga eru gjarnan leiðsagnir eða fyrirlestrar.

Þriðjudaginn 7. apríl verður sýnd myndin Sveitin milli sanda eftir Ósvald Knudsen.  

Ósvaldur er einn merkasti listamaður íslenskrar kvikmyndasögu og Sveitin milli sanda er dæmi um einstaka hæfileika hans við að fanga á fallegan máta hverfandi byggð í einangrun Öræfasveitar árið 1964.

Sýningin tekur 45 mínútur.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.