Þorraleiðsögn um grunnsýninguna

Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 12 verður boðið upp á þorraleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands.
Þorrinn hefst á föstudegi í 13. viku vetrar sem ber upp í síðari hluta janúar (19.–26. jan.) og lýkur á laugardegi þegar góa tekur við. Fyrsti dagur þorra er bóndadagur og síðasti dagur þorrans nefnist þorraþræll.
Mánaðarheitið þorri kemur fyrir í rímhandriti frá lokum 12. aldar og i Snorra-Eddu.
Gengið verður um grunnsýningu safnsins Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár og staldrar við ýmsa gripi sem tengja má þorranum og tengir mánuðinn og það sem honum tilheyrir við Íslandssöguna. Hvenær var farið að halda Þorrablót? Því þarf að þreyja þorrann og góuna - og hvaðan kemur orðið þorri?
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið.











