Menningarnótt 2026

Á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst verður fjölbreytt dagskrá í Þjóðminjasafni Íslands.
Víkingafélagið Rimmugýgur slær upp tjaldbúðum við Þjóðminjasafnið líkt og mörg undanfarin ár og heimur miðalda lifnar við - þú mátt ekki missa af því. Allt iðar af lífi, fjöri og stemmingu. Það verður barist, farið í leiki, iðkuð bogfimi, matur útbúinn að hætti landnámsfólks, haldinn markaður og hægt verður að fylgjast með handverksfólki að störfum.
Boðið verður upp á sérfræðileiðsögn Guðrúnar Hildar Rosenkjær sagnfræðings og meistara í kjóla- og búningasaum um sýninguna „Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn" og söngstund verður fyrir alla fjölskylduna þar sem sungin verða lög um hunda og ketti.
Við hefjum leika kl. 12, stanslaust miðaldafjör til kl. 17.
Sýningar safnsins verða á sínum stað og spennandi vöruúrval í safnbúðinni. Aðgangur er ókeypis þennan dag og við hlökkum til að sjá ykkur, unga sem aldna, á skemmtilegasta degi sumarsins!
Dagskrá
Kl. 12: Víkingaleikir
Kl. 13: Vopnaskak
Kl. 13:30: Söngstund í fjölskyldurými
Kl. 14: Sögustund og Hringdans
Kl. 15: Sérfræðileiðsögn um sýninguna „Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn"
Kl. 15: Vopnaskak
Kl. 16: Víkingaleikir
Kl. 17: Kveðjuathöfn, dagskrá lýkur











