Dagur óáþreifanlegs menningararfs: Hvernig dansaði fólk í gamla daga?

Á degi óáþreifanlegs menningararfs laugardaginn 17. október mun Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur fjalla um dansmenningu á Íslandi á fyrri öldum, hvernig dansar birtast okkur í heimildum og í lifandi hefð. Fyrirlesturinn verður dansandi þar sem gestir fá kennslu í dönsunum sem um ræðir á meðan fyrirlestri stendur og býðst að taka þátt.
Fyrstu heimildir um dans á Íslandi eru í handritunum þ.e. Íslendingasögum og öðrum eldri handritum. Þær lýsingar eru þó ekki greinagóðar og það er raunar ekki fyrr en liðið er á 19. öld að eiginlegar danslýsingar koma til sögunnar. En hversu langt aftur er hægt að fara? Í fyrirlestrinum verður tímabilið 1750-1850 tekið fyrir, fjallað verður um helstu heimildir um dans á Íslandi frá þeim tíma auk tónlistarinnar og hreyfinganna.
UNESCO ákvað árið 2023 að helga 17. október óáþreifanlegum menningararfi. Óáþreifanlegur menningararfur vísar til lifandi hefða, siða, venja, þekkingar og færni samfélaga sem er miðlað frá einni kynslóð til annarrar. Á Íslandi hefur áhersla á óáþreifanlegan menningararf aukist á undanförnum áratugum, m.a. í tengslum við samning UNESCO frá 2003 um varðveislu menningarerfða. Hægt er að skoða yfirlitsskrá um óáþreifanlegan menningararf á vefsíðunni Lifandi hefðir.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.









