Hvenær
February 23, 2026
Kl. 14
Hvar
3. hæð og barna- og fjölskyldurými

Barnaleiðsögn í vetrarfríi: Eins og hundur og köttur - Sýningin skoðuð og sprellikallasmiðja með hundum og köttum

19. og 23. febrúar kl. 14, báða daga.

Í tilefni af vetrarfríi í grunnskólum býður Þjóðminjasafn Íslands krökkum á grunnskólaaldri að koma í sérstaka leiðsögn um sýninguna Eins og hundur og köttur sem fjallar um sambýli fólks og þessara dýra í gegnum aldirnar. Í dag skipa hundar og kettir sérstakan sess í lífi fólks og eru oftar en ekki taldir til fjölskyldumeðlima. Áður fyrr var frekar hugsað um hvaða gagn þau gerðu á bóndabænum.

Á sýningunni má sjá ljósmyndir sem fanga dýrin í ýmsu samhengi, bein sem hafa fundist við fornleifauppgrefti og alls konar hunda- og kattahlutir. Skemmtilegt er svo kvikmyndabrot sem sýna hunda og ketti í alls konar sambýli við okkur mannfólkið.

Þegar búið er að skoða sýninguna má föndra og lita sinn eigin sprellikött eða sprellihund í barna- og fjölskyldurými á 1. hæð til að taka með heim. Allt efni verður á staðnum.

Enginn aðgangseyrir er fyrir börn að 18 ára. Aðgöngumiði í safnið gildir fyrir fullorðna á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.