Hvenær
August 15, 2026
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur

Í hádeginu flesta þriðjudaga býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Þriðjudaginn 15. september, á alþjóðadegi lýðræðis, mun Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur flytja erindi um þróun lýðræðis á Íslandi.

Upphaf nútíma lýðræðis á Íslandi er gjarnan tengt við endurreisn Alþingis árið 1843 og Þjóðfundinn 1851. Slíkar tímasetningar er þó ónákvæmar því lýðræðisþróun er langt ferli sem enn er að eiga sér stað. Þetta er ekki línulegt ferli sem snýst einungis um lög og stofnanir, kosningar, þing og kjörna fulltrúa, heldur líka um félagslega þætti svo sem þátttöku í lýðræðislegu starfi, baráttu fyrir auknum þegnrétti og samfélagslegt traust.

Í erindinu verður lagt út af efni bókarinnar Lýðræði í mótun, sem Sögufélag gaf út haustið 2024 ári. Rætt verður um lýðræðisþróun á Íslandi um og fyrir aldamótin 1900 og hún sett í samhengi við þróun þegnréttar, félagastarf á þessum tíma og vikið að stöðu lýðræðis í okkar samtíma.

Hrafnkell Lárusson (f. 1977) er doktor í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfaði sem nýdoktor í sagnfræði við deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á hugvísindasviði Háskóla Íslands 2023–2026. Nýjasta bók Hrafnkels er Lýðræði í mótun sem Sögufélag gaf út haustið 2024 og er stytt og endurbætt gerð
doktorsritgerðar hans.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.