Hvenær
September 29, 2026
Kl. 12
Hvar
Fyrirlestrarsalur

Í hádeginu flesta þriðjudaga býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Gunnar Theodór er rithöfundur og doktor í bókmenntafræði en fyrst og fremst mikill dýravinur. Hann hefur fjallað um dýr jafnt í skáldskap sem í fræðum og má þar til dæmis nefna barnabókina Steindýrin (2008) og skáldsöguna Sláturtíð (2018), að ógleymdri doktorsritgerð þar sem Gunnar rannsakaði framsetningu dýra í menningu og listum og hvernig hugmyndir okkar mannfólksins um önnur dýr geta haft mótandi áhrif á siðferðislegt samband okkar við þau.

Af tilefni sýningarinnar Eins og hundur og köttur mun Gunnar Theodór halda stutt erindi um hunda og ketti út frá íslenskri sagnahefð og menningu og ræða gæludýrahald í víðara samhengi samlífi manna og dýra í borgarsamfélaginu.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.