Hvenær
November 3, 2026
Kl. 12-12:45
Hvar
Fyrirlestrarsalur, 1. hæð

Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi svo sem bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unnið í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Þriðjudaginn 3. nóvember verður sýnd myndin Sjón er sögu ríkari. Hún var frumsýnd árið 1950 og sýnir nokkra helstu listamenn þjóðarinnar leika listir sínar. Ekki var vitað af tilvist myndarinnar fyrr en hún fannst fyrir nokkrum árum síðan. Kvikmyndasafnið hefur unnið að endursamsetningu þeirra hluta hennar sem hafa varðveist en í þeim má meðal annars sjá einstakar myndir af Maríu Markan, Jórunni Viðar, Magnúsi Jónssyni og Fritz Weisshappel flytja tónlist sína fyrir myndavélina. Þá er merkilegur grínþáttur Alfreðs Andréssonar og Haraldar Á. Sigurðssonar einnig endursamsettur úr því efni sem varðveist hefur.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Meginhlutverk Kvikmyndasafns Íslands er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.