Þriðjudagsbíó: Hornstrandir

Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unnið í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Þriðjudaginn 1. september verður sýnd myndin Hornstrandir eftir Ósvald Knudsen, eins merkasta listamanns íslenskrar kvikmyndasögu.
Mynd Ósvalds Knudsen fjallar um náttúru og mannlíf á Hornströndum. Ósvaldur tók hana á árunum 1950-1954 þegar byggð var að mestu að leggjast af á svæðinu. Þar er sagt frá lifnaðarháttum fólks og aðstæðum í hverfandi samfélagi. Meðal annars má sjá bjargsig og eggjatöku, vinnslu rekaviðar og hefðbundinn útskurð.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.
Meginhlutverk Kvikmyndasafns Íslands er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.











