Hvenær
October 6, 2026
Kl. 12-12:45
Hvar
Fyrirlestrarsalur, 1. hæð

Í hádeginu á þriðjudögum býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.

Þriðjudagsbíó á Þjóðminjasafninu er fastur liður í viðburðaröðinni og er unnið í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði bjóða söfnin upp á spennandi dagskrá íslenskra kvikmynda í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Þriðjudaginn 6. október verður kastljósinu beint að myndum Ósvalds Knudsen. Á þessari sýningu verða sýnd brot úr myndum Ósvalds sem spanna einstakan kvikmyndaferil hans. Þjóð- og náttúrulífsmyndir Ósvalds verða teknar fyrir, allt frá svipmynum af helstu listamönnum þjóðarinnar til hrikalegra eldgosmynda og sýna bæði þjóðlega íhaldssemi og framúrstefnu.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Meginhlutverk Kvikmyndasafns Íslands er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis samkvæmt lögum um skylduskil til safna og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.