Þjóðbúningahátíð - sunnudagur

Helgina 5.-6. september verður sannkölluð þjóðbúningahátíð í Þjóðminjasafni Íslands. Á hverju hausti fagnar Þjóðminjasafnið íslenska þjóðbúningnum með hátíð kringum dánardag Sigurðar málara Guðmundssonar. Sigurður var fyrsti sérstaki umsjónarmaður Þjóðminjasafns Íslands, sem þá hét Forngripasafnið, og átti stóran þátt í að móta og endurverkja íslenska þjóðbúninginn á 19. öld.
Í tilefni hátíðarinnar eru landsmenn og aðrir gestir hvattir til að mæta á Þjóðminjasafnið í íslenska þjóðbúningnum eða búningi sinnar þjóðar. Þjóðminjasafnið mun bjóða þeim sem mæta í þjóðbúningi endurgjaldslaust á sýningar og viðburði dagsins.
Dagskrá, sunnudagur 6. september, kl. 14
Brúðarbúningurinn fyrir alla fjölskylduna
Leiðsögn og klippimyndasmiðja
Allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum, býðst að koma og kynna sér brúðarbúninginn og uppgötva ævintýrið og handverkið sem honum tengist. Þær Jóhanna Bergmann safnkennari og Guðrún Hildur Rosenkjær, sérfræðingur í stöðu Kristjáns Eldjárn, taka á móti gestum. Jóhanna mun sinna börnunum en Guðrún Hildur búningaáhugafólki og öðrum fagurkerum. Auðvitað má flakka á milli hópa eftir áhuga, óháð aldri.
Jóhanna Bergmann safnkennari leiðir börn um sýninguna, og verðu sérstaklega staldrað við ævintýralegt klippimyndaverk um sögu brúðarbúningsins, sem Kristjana S. Williams túlkar á töfrandi hátt í boganum inni í Bogasal. Þar á eftir verður farið niður í barna og fjölskyldurýmið á 1. hæð þar sem börnum býðst að búa til eigið ævintýri með því að klippa út og líma fjölbreyttar fígúrur eins og þær sem Kristjana teiknaði fyrir verkið sitt. Klippimyndasmiðjan er í boði til kl. 15:30.
Guðrún Hildur Rosenkjær, sagnfræðingur og meistari í kjóla og búningasaum, ræðir og sýnir handverkið að baki brúðarbúningnum, en á sýningunni er einnig eftirgerð Guðrúnar Hildar af búningnum. Áhugafólk um íslenska kvenbúninginn má ekki missa af þessu. Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Hún sameinar fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga með efni og vinnuaðferðum liðins tíma til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra.
Á Þjóðminjasafninu ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Fyrir utan grunnsýningu safnsins og sérsýningar þess, stendur barna- og fjölskyldurýmið á 1. hæð opið fyrir öll. Þá er notalegt að setjast niður á kaffihúsinu, njóta drykkja og annarra veitinga eða líta við í safnbúðina, en þar eru á boðstólum fágætar vörur af ýmsu tagi.











