Sýningaropnun: Samtal við Sigfús

Laugardaginn 8. mars opnar í Bogasal Þjóðminjasafnsins ljósmyndasýning á verkum eftir Einar Fal Ingólfsson (f. 1966) og Sigfús Eymundsson (1837-1911). Undirtitill sýningarinnar, Í fótspor Sigfúsar Eymundssonar, lýsir verkefni Einars Fals en hann vinnur út frá og í sjónrænu samtali við myndverk Sigfúsar. Samhliða sýningunni gefur Þjóðminjasafnið út bókina Aftur – Í fótspor Sigfúsar Eymundssonar, sem í verða rúmlega 130 ljósmyndir og texti eftir Einar Fal.

Einar Falur hefur skrifað um ljósmyndir Sigfúsar og fjallað um þær við kennslu í ljósmyndasögu árum saman. Undanfarin fjögur ár hefur Sigfús, eða myndir hans, verið fararstjóri á ferðalögum Einars Fals víða um land. Hefur hann bæði endurtekið valin sjónarhorn forvera síns sem og tekið sína eigin myndramma á sömu stöðum og Sigfús myndaði á, í einskonar dagbókarskráningu og samtali um land, sögu og sjónarhorn.

Á sýningunni í Þjóðminjasafninu verður úrval þessara samtalsverka Sigfúsar og Einars Fals, að hluta ný prent eftir glerplötum eldri ljósmyndarans en einnig valin frumprent frá 19. öld, þegar myndirnar voru teknar. Um er að ræða fágæta dýrgripi í eigu Ljósmyndasafns Íslands sem afar sjaldan sjást.
Ljósmyndir á síðunni: Sigfús Eymundsson og Einar Falur Ingólfsson