Hvenær
February 6, 2026
Kl. 17-18
Hvar
Þjóðminjasafn Íslands

Linus Orri, fulltrúi gamalla hefða í íslenskum kveðskap, og Erpur, fulltrúi nýrra blæbrigða, hræra í tímalausa rímnasúpu á sundfögnuði í Þjóðminjasafninu.

Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem BlazRoca, er fyrrum sundmaður Breiðbliks og klórsviði í augum menningarlegrar kyrrstöðu – margverðlaunaður frumkvöðull í íslensku hiphoppi og rappi sem hefur í áratugi teygt listformið út fyrir hefðbundin mörk, hvort sem það er með sprengingum á sviðinu, hugvekjum í fyrirlestrasölum eða grófyrtum rökræðum í heitum pottum landsins.

Linus Orri Gunnarsson Cederborg hefur síðustu ár verið ötull í viðhaldi íslenskra sönghefða, meðal annars sem stjórnarmaður í Kvæðimannafélaginu Iðunni, stjórnandi þjóðlagahátíðarinnar Vöku og leikstjóri Kyndilbera; syrpu myndbanda með kvæði og tvísöngslög í brennidepli. Hann varð einnig snemma syndur og hefur staðið að opnum kvæðastundum í heitum pottum miðbæjarins.

Í tilefni nýlegrar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns blæs Þjóðminjasafnið til sundlaugafagnaðar við upphaf Safnanætur. Um afar þýðingarmikinn áfanga er að ræða, þar sem menningarlegt gildi íslenskrar sundlaugamenningar hefur nú hlotið alþjóðlega viðurkenningu.

Að baki skráningunni liggur mikil undirbúningsvinna sem var í höndum Þjóðminjasafns Íslands og áður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auk þess sem fjölmargir sundlaugagestir, hópar, félagasamtök og sveitarfélög komu að og studdu tilnefninguna með ýmsum hætti.

Boðið verður upp á örsýningar sem tengjast sundmenningu þjóðarinnar á jarðhæð safnsins og sundlaugabíó í fyrirlestrasal í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands.

Síðan tekur við fjölbreytt dagskrá Safnanætur í safninu.

Enginn aðgangseyrir er í safnið eftir kl. 17 á Safnanótt.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.