Opnun og tónleikar: FLÆÐI – Sólon Íslandus & Mógil

Verið velkomin á opnun sýningar og útgáfutónleika í Þjóðminjasafni Íslands, þriðjudaginn 2. júní 2026 kl. 20.
Fordrykkur hefst í anddyri safnsins kl. 19:30.
Þjóðminjavörður, Harpa Þórsdóttir, opnar sýninguna.
Sigtryggur Magnason, frá stjórn Listahátíðar, flytur ávarp.
Tónleikar hefjast kl. 20 í Horninu á 2. hæð.
Flæði er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus. Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.
Við opnun sýningarinnar heldur hljómsveitin Mógil útgáfutónleika á nýrri plötu sinni, en innblástur hennar er fenginn úr myndum og textum Sölva, og verður tónlist Mógils hluti af sýningunni.
Hljómsveitin Mógil
Heiða Árnadóttir - Söngur
Eiríkur Orri Ólafsson - Trompet
Joachim Badenhorst - Klarinett
Kristín Þóra Haraldsdóttir - Víóla
Hilmar Jensson - Rafgítar











