Námskeið í blómstursaum í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands

Kennarar: Kristín Vala Breiðfjörð, Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Lengd námskeiðs: 1 skipti - 3,5 klst
Tími: Sunnudagur, 7. júní kl 12:30-16:00
Staðsetning: Forsalur við Bogasal, 2. hæð
Námskeiðsgjald: 16.900kr. (15.210 kr. fyrir félagsmenn Heimilisiðnaðarfélagsins).
Allt efni er innifalið. Greiða þarf fyrir aðgöngumiða í safnið eða framvísa árskorti til viðbótar við námskeiðisgjald.
Blómustursaumur er frjáls útsaumsaðferð þar sem saumað er eftir munstri sem dregið er upp eða þrykkt á efnið. Að öllum líkindum er sporið nefnt eftir viðfangsefninu en hér á öldum árum voru pils oft saumuð með blómabekkjum að neðan, líkt og brúðarbúningurinn sem er í láni á Þjóðminjasafninu frá V&A og er til sýnis í Bogasal safnsins á sýningunni Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn.
Á þessu örnámskeiði verður farið yfir ýmis atriði sem gott er að hafa í huga hvort sem stefnt er að stærri verkefnum eins og faldbúningspilsi eða einhverju minna eins og lausavasa.
Nemendur fá ullarklæði með áprentuðu blómi á námskeiðinu og garn og nál, en þurfa að hafa með sér skæri og fingurbjörg (valfrjáls). Þegar nemendur hafa lokið við útsauminn er hægt að útbúa lítinn nálapúða úr prufunni.
Til að taka þátt í námskeiðinu þarf að eiga gilt árskort í Þjóðminjasafn Íslands. Árskortið er fáanlegt í móttöku safnsins og gildir á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum.
Skráning fer fram á vef Heimilisiðnaðarfélagsins HÉR.












