Hvenær
March 14, 2026
Kl. 14
Hvar
Bogasalur

Einar Falur Ingólfsson mun bjóða upp á lokaleiðsögn um sýningu sína Samtal við Sigfús - í fótspor Sigfúsar Eymundssonar laugardaginn 14. mars, kl. 14. Um er að ræða einstaka sérsýningu í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands, en lokadagur sýningarinnar er 22. mars.

Sýningin var opnuð í mars í fyrra og á henni eru ljósmyndir Einars Fals og Sigfúsar. Sigfús var frumkvöðull í ljósmyndun á Íslandi og skilur eftir sig einstakt safn ljósmynda. Einar Falur vinnur út frá og í sjónrænu samtali við myndverk Sigfúsar en hann hefur skrifað um ljósmyndir Sigfúsar og fjallað um þær við kennslu í ljósmyndasögu árum saman. Undanfarin fjögur ár hefur Sigfús, eða myndir hans, verið fararstjóri á ferðalögum Einars Fals víða um land. Hefur hann bæði endurtekið valin sjónarhorn forvera síns sem og fangað sína eigin myndramma á sömu stöðum og Sigfús myndaði á, í einskonar dagbókarskráningu og samtali um land, sögu og sjónarhorn. Á sýningunni er úrval þessara samtalsverka Sigfúsar og Einars Fals, að hluta ný prent eftir glerplötum eldri ljósmyndarans en einnig valin frumprent frá 19. öld, þegar myndirnar voru teknar. Um er að ræða fágæta dýrgripi í eigu Ljósmyndasafns Íslands sem afar sjaldan sjást.

Þetta er viðburður sem enginn áhugamanneskja um ljósmyndun ætti að láta fram hjá sér fara.

Samhliða sýningunni gaf Þjóðminjasafnið út bókina Aftur – samtal við Sigfús, sem í eru rúmlega 130 ljósmyndir auk texta eftir Einar Fal. Bókin er til sölu í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Nánar um sýninguna.

Að lokinni leiðsögn er tilvalið að skoða aðrar sýningar safnsins, setjast niður á kaffihúsinu, föndra með börnunum í barna- og fjölskyldurýminu eða líta við í safnbúðinni.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins.
Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.