Hvenær
June 17, 2026
Kl. 14
Hvar
2. hæð

Faldbúningar og flökkuskáld
Boðið verður upp á leiðsögn um list og lystisemdir Íslendinga fyrr á öldum. Sérstök áhersla verður lögð á tvær nýjar sýningar á Þjóðminjasafni Íslands sem annars vegar fjalla um listamanninn Sólon Íslandus og hins vegar einhvern glæsilegasta faldbúning sem varðveist hefur frá fyrri tíð.

Aðgangur í safnið er ókeypis þann 17. júní.

Flæði – Sólon Íslandus & Mógil
Flæði
er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus. Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né önnur boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og ýmiskonar krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum. Innblástur að Norðlandínus, hljómplötu Mógils, er fenginn úr myndum og textum Sölva. Platan ber viðvarandi áhrifum Sölva Helgasonar á listsköpun annarra glöggt vitni og er tónlist Mógils hluti af sýningunni.

Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn
Brúðarbúningurinn er úr eigu kvenna í Stephensen-fjölskyldunni, sem á þessum tíma varð ein valdamesta og efnaðasta fjölskylda landsins. Ættmóðirin, Sigríður Magnúsdóttir, bar hluta hans við brúðkaup þeirra Ólafs Stefánssonar, síðar stiftamtmanns, árið 1761. Eldri dóttir þeirra, Þórunn, fékk hluta búningsins í heimanmund árið 1780 er hún gekk að eiga Hannes Finnsson biskup. Búningurinn færðist svo í eigu Ragnheiðar, yngri systur Þórunnar. Búningurinn þótti svo vandaður að þegar erlenda gesti bar að garði var hann dreginn fram og sýndur aðkomumönnum, sem sumum þótti klæðnaðurinn sérkennilegur.

Aðgangur í safnið er ókeypis þann 17. júní.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.