Hvenær
November 16, 2026
Kl. 12
Hvar
Grunnsýning

Hér má skýr orð skilja: Íslenskan og sjálfsmyndin

Á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember kl. 12 mun Kristján Hannesson bókmenntafræðingur leiða gesti um sýningar Þjóðminjasafns Íslands og staldra við gripi sem snerta sögu íslenskunnar allt frá upphafi byggðar til nútímans. Við skoðum sérstaklega hvernig íslensk tunga og bókmenntir þróuðust í nánum tengslum við trú, prentlist og menningarstrauma Evrópu. Fólk púslaði saman huldum fornyrðum dróttkvæðanna á víkingaöld, dansaði forboðna hringdansa og kvað byltingarkennda sálma í Siðabótinni. Það hámhlustaði á rímur í upplýsingunni, og kenndi svo til og lifði með Jónasi Hallgrímssyni. Með þessar vörður að leiðarljósi skoðum við þær margslungnu áskoranir og sigra sem hafa mótað bæði tungu og sjálfsmynd Íslendinga.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

‍

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.