Krakkadagskrá á öskudag í Eddu og Þjóðminjasafni Íslands: Grímugerð, marséring, og kötturinn sleginn úr tunnunni!

Krakkadagskrá á öskudag í Eddu og Þjóðminjasafni Íslands: Grímugerð, marséring, og kötturinn sleginn úr tunnunni!
18. febrúar kl. 13–15:30
Menningarhúsin tvö; Edda og Þjóðminjasafnið, sem standa sitt hvoru megin við Suðurgötu í Reykjavík, opna dyr sínar upp á gátt á öskudaginn og bjóða krökkum að föndra og taka þátt í leiknum Að slá köttinn úr tunnunni.
Dagskráin hefst í Eddu kl. 13. Í safnkennslustofunni Sögu á 1. hæð verður efni til grímugerðar. Hvernig væri að gera sér kattargrímu í tilefni dagsins? Um kl. 14:45 verður gengið fylktu liði yfir götuna í Þjóðminjasafnið þar sem hinn æsispennandi leikur Að slá köttinn úr tunnunni hefst um kl. 15 í barna- og fjölskyldurýminu. Hver hljóta titilinn kattarkóngur og kattardrottning dagsins? Og hvað leynist inni í tunnunni?
Öllum krökkum sem taka þátt í leiknum býðst að skoða hina skemmtilegu sýningu Eins og hundur og köttur, þar sem sjá má kvikmyndabrot, ljósmyndir, fornleifar og gripi með hundum og köttum. Allt efni sýningarinnar er úr safneign Þjóðminjasafnsins eða Kvikmyndasafns Íslands.
Að sjálfsögðu verður hægt að syngja fyrir starfsfólkið bæði á Þjóðminjasafninu og í Eddu og fá gotterí að launum.
Öskudagsskemmtunin er gjaldfrjáls.
Öll börn að 18 ára aldri fá aðgang að sýningum í báðum húsunum. Aðgöngumiði fyrir fullorðna gildir inn á sýningar.
Verið öll velkomin!
Að slá köttinn úr tunnunni
Leikurinn að slá köttinn úr tunnunni eða kattarslagur barst hingað til lands frá Danmörku á síðari hluta 19. aldar. Leikurinn gengur út á það að grímuklæddir þátttakendur berja utan í tunnu, sem hangir úr lofti, þar til hún brotnar og innihaldið kemur í ljós. Heiti leiksins vísar til þess að köttur hafi verið settur lifandi í tunnuna. Sú grimmd var löngu aflögð áður en leikurinn barst til Íslands. Í staðinn var algengast að dauður hrafn hafi verið hengdur upp á fótunum inni í tunnunni og þegar tunnan var í sundur hafi hrafnshræið svo verið barið þar til hausinn datt af. Einstöku sinnum fékk dauður köttur þessa útreið. Leikurinn lagðist af víðast hvar fyrir aldamótin 1900, nema á Akureyri. Að slá köttinn úr tunnunni er hægt og bítandi að breiðast aftur út um landið, sérstaklega í leikskólum, og er þá snakk haft í tunnunni sem börnin gæða sér á að leik loknum.











