Jóga og slökun á Alþjóðlega safnadeginum

Á Alþjóðlega safnadeginum í ár er yfirskriftin Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Af því tilefni mun Þjóðminjasafnið bjóða gestum að eiga notalega stund við baðstofuna á 3. hæð safnsins í stólajóga með Ingibjörgu Eðvaldsdóttur styrktarþjálfara. Óhætt er að segja að hin forna iðkun sameini anda og líkama, hugsun og framkvæmd - óháð stétt, stöðu eða uppruna.
Yfirskrift stundarinnar er Bless stress í amstri vinnudagsins.
Ingibjörg mun leggja áherslu á að kenna fólki að slaka á og kjarna sig inni í vinnudeginum. Hún kennir einfaldar æfingar í og við vinnustöðina eins og teygjur og öndun án þess að mikið beri á. Með léttum æfingum getum við öll tileinkað okkur hæfni til að slaka á þegar mikið er í gangi og þannig unnið betur gegn streitu í amstri vinnudagsins og aukið orku og einbeitingu á sama tíma.
Að lokinni slökun er tilvalið að skoða sýningar safnsins, setjast niður á kaffihúsinu, leika með börnunum í fjölskyldurýminu eða líta við í safnbúðinni.
Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri. Fullorðnir greiða 3.300 kr. aðgangseyri og fá þá árskort sem gildir á alla viðburði og sýningar safnsins í ár frá kaupum.











