Hilmuskóli – listasmiðjur fyrir börn: Dulmál táknanna

Verið velkomin í ævintýralega röð af listasmiðjum í Þjóðminjasafninu þar sem við sökkvum okkur inn í heim myndlistarinnar hennar Hilmu af Klint.
Hilmuskóli fer fram alla sunnudaga í maí og hefst kl. 14:00.
Hver tími stendur í um 1,5 klukkustund, og eru foreldrar beðnir um að vera með börnunum á meðan smiðjan fer fram. Enginn aðgangseyrir er í smiðjurnar og börn geta komið í staka smiðju eða allar smiðjurnar, og allt þar á milli.
Dulmál táknanna - Bókstafir breytast í form og mynstur
Í þessari listasmiðju könnum við hvernig bókstafir geta breyst í mynstur og tákn með innblæstri frá verkum Hilmu af Klint. Nemendur hanna sitt eigið myndræna stafróf og dulmál og fá leiðsögn í því hvernig hægt er að umbreyta bókstöfum í form og mynstur. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða upphafsstaf í nafni hvers og eins og breyta honum í persónulegt tákn. Með línum, punktum og einföldum formum eins og hringjum, ferningum og þríhyrningum skapast nýtt myndmál þar sem stafir verða að mynstrum og merkingin verður persónuleg
Um Hilmuskóla
Í Hilmuskólanum er hver listasmiðja eins og ferðalag. Við fylgjum vísbendingum úr verkum Hilmu – litum hennar, hringjum, línum og dularfullum táknum – og leyfum þeim að leiða okkur inn í skapandi rannsókn á tilbrigðum náttúrunnar. Hvað leynist undir yfirborðinu? Hvaða mynstur birtast þegar við hlustum álitina og leyfum formunum að tala? Verkefnin verða fjölbreytt og skapandi, þar sem þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, liti og form. Tímarnir verða þannig ævintýraleg samþætting listar, ímyndunar og uppgötvunar – þar sem sköpun, forvitni og dulúð fá að vaxa saman.
Hilmuskóli – þar sem listin opnar dyr að hinu ósýnilega!
Freyja Eilíf leiðir listasmiðjurnar og eru þær hluti af meistaraverkefni hennar í listkennslunámi við Háskóla Íslands. Þannig er um að ræða samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.
Freyja Eilíf hefur reynslu af kennslu ágrunnskólastigi og leggur áherslu á skapandi og forvitnilega nálgun þar sem börn fá að kanna heim listarinnar á eigin forsendum. Athugið að óskað er eftir leyfi til að taka ljósmyndir af verkum barnanna. Myndirnar verða notaðar viðgerð námsgagna í lok listasmiðjanna.











