Þriðjudagsfyrirlestur: Þorpið sem hvarf

Í hádeginu flesta þriðjudaga býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.
Þriðjudaginn 10. nóvember flytur Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur fyrirlesturinn Þorpið sem hvarf – Saga Sundabakka í Viðey.
Á suðausturenda Viðeyjar reis snemma á 20. öld lítið þéttbýli sem nefnt var Sundabakki en var í daglegu tali oftast einfaldlega kallað Þorpið. Uppbygging þéttbýlisins hófst árið 1907 og tengdist metnaðarfullum áformum um hafnargerð og iðnvædda fiskvinnslu, á tímum þegar íslenskt samfélag var að stíga stór skref inn í nútímavæðingu, markaðsvæðingu og breytt neyslumynstur. Þorpið gekk í gegnum ýmis uppgangs- og niðursveiflutímabil í stuttri sögu sinni og breyttist að lokum í fámennan búsetukjarna áður en byggðin fór endanlega í eyði árið 1943.
Í erindinu verður stiklað á stóru um sögu Þorpsins og sagt frá fornleifarannsókn á svæðinu sem fór fram fyrir um áratug. Rannsóknin byggði á heimildavinnu, viðtölum við fyrrum íbúa, uppmælingu rústa og könnunarskurðum í sorphaugum við húsgrunnana, sem leiddu í ljós fjölbreytt gripasafn frá fyrri hluta 20. aldar. Verður fjallað um hvernig gripirnir, í samhengi við rústirnar og frásagnir fólks, varpa ljósi á daglegt líf og heimilishald í Þorpinu, og í leiðinni líka á stærri umbreytingar, meðal annars breytt neyslu- og vöruflæði sem fylgdi nútímavæðingu á fyrri hluta 20. aldar.
Á sérsýningu Þjóðminjasafnsins Fengur – Ný aðföng gefur m.a. að líta gripi úr rannsókninni í Viðey en á sýningunni má sjá úrval nýrra aðfanga í Þjóðminjasafni Íslands frá árunum 2020-2024.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











