FLÆÐI: Sýningarspjall sýningarstjóra og söngkonu Mógils

Karólína Stefánsdóttir sýningarstjóri spjallar við Heiðu Árnadóttur, söngkonu Mógil, um samstarfið og hvernig hljómsveitin sótti innblástur í líf og verk Sölva Helgasonar við gerð hljómplötunnar Norðlandínus.
FLÆÐI er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus. Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











