Félag fornleifafræðinga: Útgáfuhóf Ólafíu IV - Gården under Sandet (GUS)

Ólafía, rit Félags fornleifafræðinga, snýr aftur með pompi og prakt! Að þessu sinni er von á viðhafnarútgáfu í tilefni af 20 ára afmæli Ólafíu og engu hefur verið til sparað. Útgáfan er rúmlega 300 blaðsíðna harðspjalda bók með titilinn The Complex Development of a Norse Greenlandic Farm: Analyses of the Buildings at the GUS-site skrifuð af Guðmundi Ólafssyni, Svend Erik Albrethsen og Jette Arneborg. Bókin hefur verið í bígerð í áratugi og loks kemur út heildstætt rit yfir rannsóknirnar á Gården under Sandet (GUS) með mikið af ljósmyndum, teikningum og kortum í lit. Bókin er gefin út af Félagi fornleifafræðinga og Þjóðminjasafni Grænlands.
Í tilefni af útgáfunni heldur Félag fornleifafræðinga og Þjóðminjasafn Íslands útgáfuhóf á Þjóðminjasafninu 6. júní á milli 15:00-17:00.
Haldnar verða stuttar ræður og boðið upp á léttar veitingar.
Höfundar:
Guðmundur Ólafsson
Jette Arneborg
Svend Erik Albrethsen
Útgefendur:
Félag fornleifafræðinga
Þjóðminjasafn Grænlands (Greenland National Museum and Archives)











