Barnaviðburður: Torfbærinn og tímaferðalangar

Vilborg Bjarkadóttir myndlistarkona, kennari og þjóðfræðingur leiðir smiðju fyrir krakka þar sem gægst er inn í torfbæinn með hjálp ímyndunaraflsins.
Það er svo skrýtið að hugsa til þess að í gamla daga bjuggu allir á Íslandi í torfhúsum. Torfbær er gamaldags töfrandi hús, gert úr mold, torfi og grjóti. Svona bæir voru algengir frá landnámi og fram á 19.–20. öld, áður en stein- og timburhús tóku yfir. Í dag eru torfbæir orðnir menningarminjar og virka eins og gluggi inn í fortíðina. Það er því ótrúlega gaman að fara í smá tímaflakk og hugsa um hvernig lífið manns væri ef maður byggi í torfbæ, án ofna og aðal hitinn kæmi frá líkömum fólksins í baðstofunni, eða kúnni í fjósinu á hæðinni fyrir neðan, eins og sums staðar var. Hvað gerist þegar við sköpum okkar eigin torfbæ með því að fara í smá tímaflakk, þar sem við sjáum fyrir okkur þykka torfveggi, fallega torfhleðslu og gamaldags hlóðir þar sem eldurinn kraumar?
Í smiðjunni veltum við fyrir okkur hvernig við getum búið til sameiginlega torfhúsabyggð. Hvert barn finnur sér sína leið til að skapa persónulegt torfhús. En að sama skapi felur leikurinn í sér að hugsa og vinna saman sem hópur, þar sem börnin finna leiðir til að láta húsin tala saman. Hver er munurinn á einu húsi og mörgum húsum? Hvað gerist þegar inn í ímynduðum húsum verða til íbúar, nágrannar, sögur og álfar?
Smiðjan þjálfar félagslega hugsun um það hvernig við sköpum gott samfélag þar sem öllum líður vel og það er pláss fyrir alla og allskonar sjálfsmyndir.
Allt efni fyrir smiðjuna verður á staðnum, það þarf bara að mæta!
Enginn aðgangseyrir er fyrir börn að 18 ára. Aðgöngumiði í safnið gildir fyrir fullorðna á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið.











