Eldri sýningar
Prýðileg reiðtygi

Hvenær
February 15, 2018
October 21, 2018
Hvar
Bogasalur
Knapar lögðu upp úr því að reiðtygi væru skrautleg og til prýði. Skreyttur söðull með viðeigandi búnaði var verðmæt eign. Á fyrri öldum sátu konur í kvensöðli með báða fætur öðrum megin; þær riðu kvenveg. Karlar riðu klofvega í sínum söðli.
Á sýningunni Prýðileg reiðtygi er úrval skreyttra söðla, söðulreiða og söðuláklæða úr safneign Þjóðminjasafns Íslands. Í tengslum við sýninguna kemur út samnefnt rit þar sem fjallað er um söðla og það handverk sem notað var til að prýða þá. Í greinum ritsins er rýnt í drifið látún þar sem birtast blómstrandi jurtir og framandi dýralíf í heillandi myndum. Séríslensk glituð söðuláklæði eru einnig til vitnis um listfengi þeirra sem sköpuðu þessa ríkulegu arfleifð.
Sýningarstjóri:
Handrit:
Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir
Þýðandi:
Yfirlestur:
Uppsetning:
Prentun ljósmynda:
Innrömmun:
Grafísk hönnun:
Prentun texta:
Þakkir:
Safnbúð
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi
