Samtal við Sigfús, leiðsögn og erindi um forvörslu ljósmynda

Kristín Halla Baldvinsdóttir og Þórir Ingvarsson flytja erindi um forvörslu ljósmynda, ljósmyndir Sigfúsar Eymundssonar (1837-1911) og albúm hans. Að því loknu er boðið upp á sérfræðileiðsögn með Einari Fali Ingólfssyni um sýninguna Samtal við Sigfús - Í fótspor Sigfúsar Eymundssonar.
Viðburðurinn er haldinn á fæðingardegi Sigfúsar, 24. maí. Hann var frumkvöðull í ljósmyndun á Íslandi og skilur eftir sig einstakt safn ljósmynda.
Sýningin opnaði 8. mars og á henni eru ljósmyndaverk Einars Fals og Sigfúsar. Einar Falur vinnur út frá og í sjónrænu samtali við myndverk Sigfúsar en hann hefur skrifað um ljósmyndir Sigfúsar og fjallað um þær við kennslu í ljósmyndasögu árum saman. Undanfarin fjögur ár hefur Sigfús, eða myndir hans, verið fararstjóri á ferðalögum Einars Fals víða um land. Hefur hann bæði endurtekið valin sjónarhorn forvera síns sem og tekið sína eigin myndramma á sömu stöðum og Sigfús myndaði á, í einskonar dagbókarskráningu og samtali um land, sögu og sjónarhorn. Á sýningunni er úrval þessara samtalsverka Sigfúsar og Einars Fals, að hluta ný prent eftir glerplötum eldri ljósmyndarans en einnig valin frumprent frá 19. öld, þegar myndirnar voru teknar. Um er að ræða fágæta dýrgripi í eigu Ljósmyndasafns Íslands sem afar sjaldan sjást.
Viðburður sem enginn áhugamanneskja um ljósmyndun ætti að láta fram hjá sér fara.