Háskóli unga fólksins: Fornleifafræðiþema - ráðgáta fortíðarinnar
Þjóðminjasafn Íslands tekur þátt í þemanámskeiðum Háskóla unga fólksins í júní og er það í fjórða sinn sem starfsfólk safnsins tekur á móti ungum nemendum á sumarnámskeiði skólans. Þemanámskeiðin hafa fjallað um ýmsislegt sem varðar forna siði, þjóðtrú, handverk og listir. Í þetta sinn fá nemendur að kynnast vísindunum á bak við það sem við vitum um greftrunarsiði og daglegt líf á víkingaöld á Íslandi:
Fornleifafræðiþema - ráðgáta fortíðarinnar
Kennarar
Sigrún Hannesdóttir, doktor í fornleifafræði frá Háskóla Íslands
Joe W. Walser III, sérfræðingur í mannabeinasafni í Þjóðminjasafni Íslands
Jóhanna Bergmann, safnkennari í Þjóðminjasafni Íslands
Kuml, bein og leyndarmál fortíðar.
Í þessu þema fá nemendur að kynnast göldrum fornleifafræðinnar, meðal annars í skemmtilegri vettvangsferð á Þjóðminjasafn Íslands.
Á námskeiðinu verður fjallað um greftrunarsiði á Íslandi í heiðinni tíð. Nemendur læra um kuml og haugfé og kynnast því hvað fornleifafræðin getur sagt okkur um daglegt líf á víkingaöld.
Á Þjóðminjasafninu fá nemendur að skoða alvöru mannabein og gripi sem algengt er að finna í kumlum.
Skráning í Háskóla unga fólksins HÉR











