Jólatréð í stofu stendur

Hluti af aðventusiðum Þjóðminjasafnsins er að fagna gömlum jólavenjum og sýna nokkur gömul gervitré frá 20. öld á 3. hæð.
Fyrstu heimildir um jólatré á Íslandi eru frá miðri 19. öld. Siðurinn barst til Íslands frá Danmörku. Í fyrstu voru jólatrén gjarnan smíðuð úr viði, því fá grenitré uxu á Íslandi og langar skipsferðir takmörkuðu innflutning. Eitthvað var flutt inn af lifandi jólatrjám eftir 1920, en sá innflutningur datt að mestu niður á kreppuárunum og hófst ekki aftur að ráði fyrr en eftir síðari heimstyrjöld. Heimatilbúin jólatré voru því algengust meðal almennings fram undir 1950.
Skipuleg skógrækt hófst á Íslandi á 20. öld. Skógræktarfélag Reykjavíkur var stofnað árið 1901 til að rækta skóga og græn svæði í kringum höfuðborgina. Á áttunda áratugnum var fyrst hægt að kaupa lifandi innlend jólatré. Nú eru íslensk grenitré stór hluti af jólatrjáamarkaðnum og þykja sjálfbær kostur.
Jólgeirsstaðir
Í aðdraganda jóla heimsækja allir gömlu jólasveinarnir safnið ásamt systrum þeirra og foreldrunum Grýlu og Leppalúða. Til að fagna komu þeirra og gera þá sérstaklega velkomna sýnum við smækkaða útgáfu af bæ sem þau hafa hreiðrar um sig í á 2. hæð.
Húsið sjálft, þ.e. Jólgeirsstaðir, er smíðað af Gunnari Bjarnasyni sem vann lengi sem leikmyndahönnuður og leikmyndasmiður í Þjóðleikhúsinu. Jólasveinarnir eru eftir mæðgurnar Árnýju Guðmundsdóttur og Guðrúnu Geirsdóttur.
Aukahlutirnir eru svo samtíningur; eitthvað keypt, eitthvað hugsanlega útbúið af starfsfólki safnsins og eitthvað gert af þessum sama Gunnari Bjarnasyni leikmyndasmið.
Ljósmyndir úr safneign og sérhannaðar fallegar vörur sem tengjast sýningarhaldi













