When
May 10, 2026
Kl. 14
where
Bogasalur

Einn ríkulegasti kvenbúningur í sögu landsins var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Síðar kom í ljós að svo var ekki og árið 1963 fannst búningurinn óvænt í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sá fundur markaði tímamót í íslenskum búningarannsóknum.

Sýningin „Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn" stendur yfir frá 9. maí 2026 til 9. maí 2027. Sýningarspjallið er hluti af dagskrá lista HönnunarMars sem fer fram dagana 6.-10. maí 2026.

Þann 10 maí kl. 14 munu Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Guðrún Hildur Rosenkjær, sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum, ræða handverkið að baki brúðarbúningsins.

Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Í verkum sínum sameinar hún fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga, efni og vinnuaðferðir til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra. Í samstarfi við gullsmiðinn Ásmund Kristjánsson, sem hefur endursmíðað skart búningsins, hefur hún rannsakað brúðarbúninginn í þaula og lagt fram mikilvæga þekkingu á gerð hans og efnivið.

Guðrún hefur jafnframt rannsakað sögu Guðrúnar Skúladóttur, „Blómstranna móður“, sem var annáluð fyrir framúrskarandi saumaskap og eru verk hennar eru varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands, en pilsið á brúðarbúningnum á sýningunni er hennar höfundarverk. Í spjalli þeirra Hörpu mun Guðrún Hildur meðal annars segja frá helstu uppgötvunum sínum við rannsóknir á búningnum, veita innsýn í saumaskapinn sjálfan og beina sjónum að samfélagslegri stöðu Guðrúnar Skúladóttur og annarra kvenna á hennar tíma.

Sýningarspjallið fer fram á íslensku.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins.Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

Watch the lecture here

Explore our YouTube channel

Speakers and Topics

Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.