Brúðarbúningurinn: Leiðsögn sýningarhöfundar

Í leiðsögninni mun Freyja Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttir, einn sýningarhöfunda sýningarinnar Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn, fara um víðan völl sýningarinnar; ræða faldbúninga, sjálfan brúðarbúninginn og ævintýralega sögu hans.
Miðpunktur sýningarinnar er einn ríkulegasti kvenbúningur í sögu landsins, sem var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Síðar kom í ljós að svo var ekki og árið 1963 fannst búningurinn óvænt í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sá fundur markaði tímamót í íslenskum búningarannsóknum. Nú hefur búningurinn verið fenginn að láni frá V&A safninu.
Brúðarbúningurinn er úr eigu kvenna í Stephensen-fjölskyldunni, sem á þessum tíma varð ein valdamesta og efnaðasta fjölskylda landsins. Ættmóðirin, Sigríður Magnúsdóttir, bar hluta hans við brúðkaup þeirra Ólafs Stefánssonar, síðar stiftamtmanns, árið 1761. Eldri dóttir þeirra, Þórunn, fékk hluta búningsins í heimanmund árið 1780 er hún gekk að eiga Hannes Finnsson biskup. Búningurinn færðist svo í eigu Ragnheiðar, yngri systur Þórunnar. Búningurinn þótti svo vandaður að þegar erlenda gesti bar að garði var hann dreginn fram og sýndur aðkomumönnum, sem sumum þótti klæðnaðurinn sérkennilegur.










