Hvenær
Alltaf er hægt að skoða húsið að utan
Hvar
Hofsósi, Skagafirði

Pakkhúsið á Hofsósi er meðal elstu húsa sinnar tegundar á landinu og með elstu timburhúsum landsins. Það var reist 1777.

Á Hofsósi við austanverðan Skagafjörð var mikilvægurverslunarstaður á tímum einokunarverslunarinnar 1602-1787. Pakkhúsið var flutttilsniðið til landsins á vegum dansks verslunarfélags, eitt tólf sambærilegrahúsa, sem reist voru á athafnasvæði þess. Aðeins eitt annað þerra húsa stendurenn og er það í Jakobshavn á Grænlandi.

Pakkhúsið var tekið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands árið 1954. Viðgerðir hófust þó ekki fyrr en árið 1986 og var húsið tekið í notkun fyrri hluta ársins 1992. Ýmsar sýningar hafa verið settar upp í húsinu í seinni tíð.

Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar má nálgast hér:

PDF Icon

Húsið er stokkbyggt bjálkahús og er hver stokkur um 30 cm á hæð ognærri 20 cm á breidd, nótaður að ofan og neðan og borð í rauf. Á úthornumlæsast stokkar saman með sérstökum hætti og ganga stokkendar út fyrir veggbrún.Átta stokkar eru í vegghæð. Að grunnfleti er húsið u.þ.b. 8,2 m á breidd og12,0 m á lengd (13x19 álnir). Geymsluloft er í húsinu og op á efri hæð meðhlerum, þar sem vörur voru fluttar um. Tvöföld borðaklæðning er á þaki og erskarsúð að utan. Veggir eru tjargaðir að utanverðu sem og þakið. ‍

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.