Fjölmenni var í Þjóðminjasafninu þann 14. júní, en þá voru opnaðar tvær sýningar í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins, Lögréttutjöldin og Þjóð í mynd.

Á sýningunni Lögréttutjöldin eru sýnd samnefnd tjöld en þau eru nú sýnd í fyrsta sinn á Íslandi. Tjöldin eru talin hafa hangið í Lögréttuhúsinu á Þingvöllum á 18. öld. Þau eru í eigu Þjóðminjasafns Skotlands sem hefur nú lánað þau Þjóðminjasafninu meðan á sýningunni stendur. Hér má lesa um sýninguna.

Á sýningunni Þjóð í mynd eru sýndar kvikmyndir og ljósmyndir frá því lýðveldið var stofnað árið 1944. Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í andrúmsloftið sem ríkti í aðdraganda 17. júní 1944 og hátíðina á Þingvöllum þann dag. Sýningin er haldin í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands.

Myndir

No items found.
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.