Regnbogaþráður Þjóðminjasafnsins á Hinsegin dögum 4.-9. ágúst
Þjóðminjasafn Íslands fagnar fjölbreytileikanum. Í tilefni Hinsegin daga sem fram fara 4.-9. ágúst minnir Þjóðminjasafnið á Regnbogaþráð safnsins.

Regnbogaþráðurinn er fræðsla á grunnsýningu safnsins „Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár". Fræðslan er í formi hljóðleiðsagnar. Markmið hennar er að miðla upplýsingum um hinsegin líf í Íslandssögunni, sem og að sýna hvernig hugmyndir um kyn og kynhneigð taka á sig ýmsar myndir á ólíkum tímum. Auk þess að spyrja spurninga, kanna hið ósagða og hvetja til gagnrýnnar hugsunar.

Gestir mæta með snjallsíma og heyrnartól. Þráðurinn beinir þeim að ellefu vörðum eða stöðum á grunnsýningunni þar sem staldrað er við og hlustað á fræðslu sem tengist efninu út frá viðkomandi stað á sýningunni. Þráðurinn var unninn í samvinnu við Samtökin '78.

Velkomin öll í Þjóðminjasafn Íslands sem er opið alla daga frá klukkun 10 til 17.

Myndir

No items found.
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.