Regnbogaþráður Þjóðminjasafnsins á Hinsegin dögum 4.-9. ágúst
Þjóðminjasafn Íslands fagnar fjölbreytileikanum. Í tilefni Hinsegin daga sem fram fara 4.-9. ágúst minnir Þjóðminjasafnið á Regnbogaþráð safnsins.

Regnbogaþráðurinn er fræðsla á grunnsýningu safnsins Þjóð verður til -menning og samfélag í 1200 ár. Fræðslan er í formi hljóðleiðsagnar. Markmið hennar er að miðla upplýsingum um hinsegin líf í Íslandssögunni, sem og að sýna hvernig hugmyndir um kyn og kynhneigð taka á sig ýmsar myndir á ólíkum tímum. Auk þess að spyrja spurninga, kanna hið ósagða og hvetja til gagnrýnnar hugsunar.

Gestir mæta með snjallsíma og heyrnartól. Þráðurinn beinir þeim að ellefu vörðum eða stöðum á grunnsýningunni þar sem staldrað er við og hlustað á fræðslu sem tengist efninu út frá viðkomandi stað á sýningunni. Þráðurinn var unninn í samvinnu við Samtökin '78.

Velkomin öll í Þjóðminjasafn Íslands sem er opið alla daga frá klukkun 10 til 17.

Myndir

No items found.
Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.