Fjölmargir menningarviðburðir í sundlaugum landsins
Í tilefni þess að sundlaugamenning var í desember skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf heims, auglýsti Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.

Verkefnin endurspegla fjölbreytileika og sköpunarkraft enmeðal þess sem boðið verður upp á eru tónlistarflutningur, gjörningar,fræðsluviðburðir og samfélagsverkefni. Þar má nefna sundsalsa, sundkeppni ísögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöng, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld meðætum blómum.

 

Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf í sundlaugumlandsins, sem um árabil hafa gegnt mikilvægu hlutverki í daglegu lífilandsmanna, og skapa um leið ný tækifæri til menningarupplifunar í nærumhverfifólks. Með verkefnunum er einnig leitast við að vekja athygli á þeirri einstökusundlaugamenningu sem mótað hefur íslenskt samfélag um áratugaskeið.

 

Frumkvæðið miðar að því að færa list og menningu nærfólki og sameina á skapandi hátt sundlaugamenningu og önnur menningarform. Framundan er því spennandi sumar þar sem sundlaugar landsins verða ekki aðeinsvettvangur slökunar og hreyfingar, heldur einnig lifandi miðstöðvar sköpunar,samveru og menningarupplifunar fyrir alla. Sjáumst í sundi!

 

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk:

 

Menningarfélagið Tær

Konukroppar - sviðsverk í sundlaugum

Konukroppar er sviðsverk í sundlaug sem kannar  kvenlíkamann, rými og íslenska sundlaugarmenningu sem þjóðararf. Verkið  sameinar dans og söng og verður sýnt í tengslum við ráðstefnu Norræna  dansfræðafélagsins 2026.

MX ehf.

Sund á Selfossi

Viðburður í Sundhöll Selfoss sem blandar saman  tónlist, slökun og upplifun í innilaug sundhallarinnar.

Í tröllahöndum ehf.

Sundbíó Sundskála Svarfdæla

Sundskáli Svarfdæla, ein elsta yfirbyggða sundlaug  landsins býður upp á sundbíó í samstarfi við   Héraðsskjalasafn  Dalvíkubyggðar.

RTD Rannsóknir og tækniþróun  Ísland ehf

Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja

Samblanda af tónlistar- náttúru-, menningar- og  söguupplifun og virkri þátttöku gesta í sundlaug Vestmannaeyja á mögnuðum  viðburði, þar sem skjávarpatækni, ljósa- og hljóðkerfi ásamt  neðansjávarhátölurum verða nýtt til hins ítrasta til þess að vekja athygli  lífríki hafsins, sögu og náttúru Vestmannaeyja.

Menningarhúsið Berg

Söngsund

Söngsund - Menningarhús Dalvíkurbyggðar ásamt þremur  kórum í Dalvíkurbyggð bjóða gestum upp á sannkallaða söngveislu í Sundlaug  Dalvíkur.

Ísafjarðarbær

Sundlaugamenning – 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar

Ísafjarðarbær fagnar 30 ára afmæli 1. júní  næstkomandi, af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir íbúa  sveitarfélagsins. Hluti af dagskránni er röð menningarviðburða í sundlaugum  sveitarfélagsins dagana 29. maí – 1. júní 2026. Dagskráin sameinar  listgreinar með áherslu á bæjarlistamenn sem útnefndir hafa verið frá árinu 2000.

History Up Close ehf

Að synda eða sökkva: Hreyfanleiki fólks í  hringabrynju við stýrðar aðstæður

Skipulagt helgarsundmót milli sundlauganna í  Stykkishólmi, Búðardal og Borgarnesi með sögulegu ívafi þar sem keppt er í  (1) hringabrynjusundi, (2) sundi í sögulegum vaðmálsfötum og (3) að synda með  “logandi” kyndil til að kynnast menningararfi Íslands á nýjan hátt. Laugin  þar sem flestir ná yfir á hinn endann vinnur!

Salsakommúnan, félagasamtök

Sumarsalsasund í Árbæjarlaug

Salsakommúnan og Árbæjarlaug bjóða til  sumarsalsaveislu þar sem tónlist, menning og matur frá Mið- og Suður-Ameríku  verða í forgrunni. Um er að ræða fjölskylduvænan menningarviðburð í innilaug  Árbæjarlaugar sem sameinar íslenska sundlaugarmenningu og suðræna tónlist.  Innan um hitabeltisgróður innilaugarinnar skapast hlý stemning sem flytur  gesti beint á suðrænar slóðir.

Kirkjukór  Möðruvallaklaustursprestakalls

Jónasarlög í Jónasarlaug

Tónlistarviðburður í Jónasarlaug á Þelamörk á degi  íslenskrar tungu þar sem flutt verða lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur í Þelamerkurskóla skapa myndverk sem fljóta í lauginni og skapa  einstaka menningarupplifun í anda sundlaugamenningar.

Flothetta ehf

Vatnaveröld barna

Hönnunarteymið Flothetta og Þykjó taka höndum saman  og skapa leikandi létta vatnaveröld fyrir börn. Útkoman verður falleg  upplifunarhönnun á viðburðum fyrir yngri sundlaugargesti sem gengur út á  nærandi samveru í leik og skynjun.

Hringleikur - sirkuslistafélag

Sirkus Sund! - nýsirkus í Laugardalslaug

Sirkus Sund! er staðbundin (e. site-specific)  nýsirkussýning sem verður sköpuð sérstaklega fyrir Laugardalslaug.  Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Side-Flipp, sem er upptaktur að  sirkushátíðinni Flip Festival. Verkið er aðgengileg, spennandi en jafnframt  súrrealísk upplifun sem fléttar sirkuslistum, s.s. loftfimleikum, akróbatík  og trúðleik, við sundlaugarmenningu, og vatn í víðum skilningi.

Karlakór Akureyrar - Geysir

Sungið í lauginni

Karlakór Akureyrar - Geysir (KAG) mætir í sund og  tekur lagið í sundlaugum Akureyrar.

Sveitarfélagið Hornafjörður

Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar

Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar mun bjóða  fjölbreyttum íbúahóp Sveitarfélagsins Hornafjarðar að kynnast íslenskri  menningu á skemmtilegan og öðruvísi hátt. Sýnd verður íslensk kvikmynd á  breiðtjaldi utandyra á meðan gestir slaka á í sundlauginni og pottunum. Að  sýningu lokinni verður boðið upp á pylsu og ís.

Margrét Erla Maack

Sundballetttímar á Vestfjörðum með Sundballettinum Eilífðinni

Sundballettinn Eilífðin hefur slegið í gegn  undanfarin sumur á höfuðborgarsvæðinu en nú er komið að Vestfjörðum. Tímarnir  eru ætlaðir öllum þeim sem eru syndir og ná til botns og eru til í fegurð og  fíflagang, núvitund og gleði.

Eyjafjarðarsveit

Sundmenningarhátíðin í Eyjafjarðarsveit

Tónleikar karlakórs Eyjafjarðar í sundlauginni í Hrafnagilshverfi  í Eyjafjarðarsveit í haust á nýrri sundlaugarmenningarhátíð.

Langanesbyggð

Nýjar leiðir til að upplifa sundlaugarmenningu –  Flotandi viðburður í Langanesbyggð

Verkefnið felur í sér fljótandi viðburð í innilaug,  þar sem þátttakendur fljóta saman í rólegu umhverfi með tónlist og lýsingu.  Tvær lotur munu gera fleiri fólki kleift að taka þátt og upplifa sundlaugina  sem menningarlegan fundarstað með áherslu á velferð og samfélag.

Svæðisgarður Snæfellsness ses.

KvöldSundStund á Snæfellsnesi

Svæðisgarður Snæfellsnes í samvinnu við sundlaugar á  Snæfellsnesi (þær eru 4) heldur viðburð á hverju stað. Viðburður er um kvöld  með lengri opnun. Á viðburði er boðið upp á tónlist úr héraði, við gerum  óáfengan koktel úr ölkelduvatni með ætum blómum og rabarbarasýrópi, segjum  sögur og njótum samveru.

Katla Rut Pétursdóttir

Skáldasuð - ljóðahátíð

Hátíðin Skáldasuð verður haldin í fyrsta sinn innan  Múlaþings á vormánuðum. Hátíðin færir ljóðlist út fyrir hefðbundin rými og  inn í óvænt umhverfi, svo sem sundlaugar, heita potta og búningsklefa. Lögð  er áhersla á skapandi, sjónræna og aðgengilega miðlun sem gerir ljóð að  lifandi og skemmtilegri upplifun fyrir öll.

Halla Jónsdóttir

Syngjum saman í sundi

Á Akranesi er mikið og blómlegt menningarlíf. Með  verkefninu Syngjum saman í sundi verður gefið fólki á öllum aldri tækifæri að  gera sér dagamun með skemmtilegri sundferð þar sem tónlist og söngvar verða í  fyrirrúmi. Stefnt er að því að standa fyrir tveimur ólíkum viðburðum í sundlaugum  Akraness í júní.

Jazzhátíð Reykjavíkur

Jazzhátíð Reykjavíkur í Vesturbæjarlaug

Á Jazzhátíð Reykjavíkur ætlum við að bjóða upp á  jazztónleika í Sundlaug Vesturbæjar laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 með Skólasveit  Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM). Gestir geta notið lifandi jazz­tónlistar í einstöku umhverfi þar sem heitt vatn,  sumarstemning og tónlist mætast.

Páll Sólmundur h. Eydal

SundStrengir

Hljómsveitin Strengir leikur íslensk og erlend  dægurlög í bland fyrir sundlaugargesti. Tekið verður við óskalögum á  sundlaugarbakkanum og fólk hvatt til að syngja með. Strengir eru þekktir  fyrir líflega sviðsframkomu, mikið stuð, hlýtt viðmót og láta engan  ósnortinn. Komið í sund og syngið uppáhaldslögin ykkar á einstakri söngstund  með Strengjum!

Þorgeir Rúnar Finnsson

Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi - tal og tónar

Farið verður yfir áhugaverða sögu sundmenningar í  fámennu sveitarfélagi á landsbyggðinni, allt frá sundkennslu í Gljúfrárgili  til byggingar og endurbóta nýrrar sundlaugar á Grenivík. Samhliða því verður  boðið upp á fjölbreytt tónlistaratriði; nemendur Grenivíkurskóla spila á  marimbur, tónlistarmaður frá Eistlandi kemur fram og Húsbandið frá Grenivík  lýkur viðburðinum á balli.

Myndir

No items found.
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.