Fjölmargir menningarviðburðir í sundlaugum landsins

Menning og heilbrigði
Verkefnin endurspegla fjölbreytileika og sköpunarkraft enmeðal þess sem boðið verður upp á eru tónlistarflutningur, gjörningar,fræðsluviðburðir og samfélagsverkefni. Þar má nefna sundsalsa, sundkeppni ísögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöng, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld meðætum blómum.
Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf í sundlaugumlandsins, sem um árabil hafa gegnt mikilvægu hlutverki í daglegu lífilandsmanna, og skapa um leið ný tækifæri til menningarupplifunar í nærumhverfifólks. Með verkefnunum er einnig leitast við að vekja athygli á þeirri einstökusundlaugamenningu sem mótað hefur íslenskt samfélag um áratugaskeið.
Frumkvæðið miðar að því að færa list og menningu nærfólki og sameina á skapandi hátt sundlaugamenningu og önnur menningarform. Framundan er því spennandi sumar þar sem sundlaugar landsins verða ekki aðeinsvettvangur slökunar og hreyfingar, heldur einnig lifandi miðstöðvar sköpunar,samveru og menningarupplifunar fyrir alla. Sjáumst í sundi!
Eftirfarandi verkefni hljóta styrk:
Menningarfélagið Tær
Konukroppar - sviðsverk í sundlaugum
Konukroppar er sviðsverk í sundlaug sem kannar kvenlíkamann, rými og íslenska sundlaugarmenningu sem þjóðararf. Verkið sameinar dans og söng og verður sýnt í tengslum við ráðstefnu Norræna dansfræðafélagsins 2026.
MX ehf.
Sund á Selfossi
Viðburður í Sundhöll Selfoss sem blandar saman tónlist, slökun og upplifun í innilaug sundhallarinnar.
Í tröllahöndum ehf.
Sundbíó Sundskála Svarfdæla
Sundskáli Svarfdæla, ein elsta yfirbyggða sundlaug landsins býður upp á sundbíó í samstarfi við Héraðsskjalasafn Dalvíkubyggðar.
RTD Rannsóknir og tækniþróun Ísland ehf
Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja
Samblanda af tónlistar- náttúru-, menningar- og söguupplifun og virkri þátttöku gesta í sundlaug Vestmannaeyja á mögnuðum viðburði, þar sem skjávarpatækni, ljósa- og hljóðkerfi ásamt neðansjávarhátölurum verða nýtt til hins ítrasta til þess að vekja athygli lífríki hafsins, sögu og náttúru Vestmannaeyja.
Menningarhúsið Berg
Söngsund
Söngsund - Menningarhús Dalvíkurbyggðar ásamt þremur kórum í Dalvíkurbyggð bjóða gestum upp á sannkallaða söngveislu í Sundlaug Dalvíkur.
Ísafjarðarbær
Sundlaugamenning – 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær fagnar 30 ára afmæli 1. júní næstkomandi, af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir íbúa sveitarfélagsins. Hluti af dagskránni er röð menningarviðburða í sundlaugum sveitarfélagsins dagana 29. maí – 1. júní 2026. Dagskráin sameinar listgreinar með áherslu á bæjarlistamenn sem útnefndir hafa verið frá árinu 2000.
History Up Close ehf
Að synda eða sökkva: Hreyfanleiki fólks í hringabrynju við stýrðar aðstæður
Skipulagt helgarsundmót milli sundlauganna í Stykkishólmi, Búðardal og Borgarnesi með sögulegu ívafi þar sem keppt er í (1) hringabrynjusundi, (2) sundi í sögulegum vaðmálsfötum og (3) að synda með “logandi” kyndil til að kynnast menningararfi Íslands á nýjan hátt. Laugin þar sem flestir ná yfir á hinn endann vinnur!
Salsakommúnan, félagasamtök
Sumarsalsasund í Árbæjarlaug
Salsakommúnan og Árbæjarlaug bjóða til sumarsalsaveislu þar sem tónlist, menning og matur frá Mið- og Suður-Ameríku verða í forgrunni. Um er að ræða fjölskylduvænan menningarviðburð í innilaug Árbæjarlaugar sem sameinar íslenska sundlaugarmenningu og suðræna tónlist. Innan um hitabeltisgróður innilaugarinnar skapast hlý stemning sem flytur gesti beint á suðrænar slóðir.
Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls
Jónasarlög í Jónasarlaug
Tónlistarviðburður í Jónasarlaug á Þelamörk á degi íslenskrar tungu þar sem flutt verða lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur í Þelamerkurskóla skapa myndverk sem fljóta í lauginni og skapa einstaka menningarupplifun í anda sundlaugamenningar.
Flothetta ehf
Vatnaveröld barna
Hönnunarteymið Flothetta og Þykjó taka höndum saman og skapa leikandi létta vatnaveröld fyrir börn. Útkoman verður falleg upplifunarhönnun á viðburðum fyrir yngri sundlaugargesti sem gengur út á nærandi samveru í leik og skynjun.
Hringleikur - sirkuslistafélag
Sirkus Sund! - nýsirkus í Laugardalslaug
Sirkus Sund! er staðbundin (e. site-specific) nýsirkussýning sem verður sköpuð sérstaklega fyrir Laugardalslaug. Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Side-Flipp, sem er upptaktur að sirkushátíðinni Flip Festival. Verkið er aðgengileg, spennandi en jafnframt súrrealísk upplifun sem fléttar sirkuslistum, s.s. loftfimleikum, akróbatík og trúðleik, við sundlaugarmenningu, og vatn í víðum skilningi.
Karlakór Akureyrar - Geysir
Sungið í lauginni
Karlakór Akureyrar - Geysir (KAG) mætir í sund og tekur lagið í sundlaugum Akureyrar.
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar
Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar mun bjóða fjölbreyttum íbúahóp Sveitarfélagsins Hornafjarðar að kynnast íslenskri menningu á skemmtilegan og öðruvísi hátt. Sýnd verður íslensk kvikmynd á breiðtjaldi utandyra á meðan gestir slaka á í sundlauginni og pottunum. Að sýningu lokinni verður boðið upp á pylsu og ís.
Margrét Erla Maack
Sundballetttímar á Vestfjörðum með Sundballettinum Eilífðinni
Sundballettinn Eilífðin hefur slegið í gegn undanfarin sumur á höfuðborgarsvæðinu en nú er komið að Vestfjörðum. Tímarnir eru ætlaðir öllum þeim sem eru syndir og ná til botns og eru til í fegurð og fíflagang, núvitund og gleði.
Eyjafjarðarsveit
Sundmenningarhátíðin í Eyjafjarðarsveit
Tónleikar karlakórs Eyjafjarðar í sundlauginni í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit í haust á nýrri sundlaugarmenningarhátíð.
Langanesbyggð
Nýjar leiðir til að upplifa sundlaugarmenningu – Flotandi viðburður í Langanesbyggð
Verkefnið felur í sér fljótandi viðburð í innilaug, þar sem þátttakendur fljóta saman í rólegu umhverfi með tónlist og lýsingu. Tvær lotur munu gera fleiri fólki kleift að taka þátt og upplifa sundlaugina sem menningarlegan fundarstað með áherslu á velferð og samfélag.
Svæðisgarður Snæfellsness ses.
KvöldSundStund á Snæfellsnesi
Svæðisgarður Snæfellsnes í samvinnu við sundlaugar á Snæfellsnesi (þær eru 4) heldur viðburð á hverju stað. Viðburður er um kvöld með lengri opnun. Á viðburði er boðið upp á tónlist úr héraði, við gerum óáfengan koktel úr ölkelduvatni með ætum blómum og rabarbarasýrópi, segjum sögur og njótum samveru.
Katla Rut Pétursdóttir
Skáldasuð - ljóðahátíð
Hátíðin Skáldasuð verður haldin í fyrsta sinn innan Múlaþings á vormánuðum. Hátíðin færir ljóðlist út fyrir hefðbundin rými og inn í óvænt umhverfi, svo sem sundlaugar, heita potta og búningsklefa. Lögð er áhersla á skapandi, sjónræna og aðgengilega miðlun sem gerir ljóð að lifandi og skemmtilegri upplifun fyrir öll.
Halla Jónsdóttir
Syngjum saman í sundi
Á Akranesi er mikið og blómlegt menningarlíf. Með verkefninu Syngjum saman í sundi verður gefið fólki á öllum aldri tækifæri að gera sér dagamun með skemmtilegri sundferð þar sem tónlist og söngvar verða í fyrirrúmi. Stefnt er að því að standa fyrir tveimur ólíkum viðburðum í sundlaugum Akraness í júní.
Jazzhátíð Reykjavíkur
Jazzhátíð Reykjavíkur í Vesturbæjarlaug
Á Jazzhátíð Reykjavíkur ætlum við að bjóða upp á jazztónleika í Sundlaug Vesturbæjar laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 með Skólasveit Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM). Gestir geta notið lifandi jazztónlistar í einstöku umhverfi þar sem heitt vatn, sumarstemning og tónlist mætast.
Páll Sólmundur h. Eydal
SundStrengir
Hljómsveitin Strengir leikur íslensk og erlend dægurlög í bland fyrir sundlaugargesti. Tekið verður við óskalögum á sundlaugarbakkanum og fólk hvatt til að syngja með. Strengir eru þekktir fyrir líflega sviðsframkomu, mikið stuð, hlýtt viðmót og láta engan ósnortinn. Komið í sund og syngið uppáhaldslögin ykkar á einstakri söngstund með Strengjum!
Þorgeir Rúnar Finnsson
Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi - tal og tónar
Farið verður yfir áhugaverða sögu sundmenningar í fámennu sveitarfélagi á landsbyggðinni, allt frá sundkennslu í Gljúfrárgili til byggingar og endurbóta nýrrar sundlaugar á Grenivík. Samhliða því verður boðið upp á fjölbreytt tónlistaratriði; nemendur Grenivíkurskóla spila á marimbur, tónlistarmaður frá Eistlandi kemur fram og Húsbandið frá Grenivík lýkur viðburðinum á balli.