Ritröð Þjóðminjasafns Íslands, Húsafriðunarnefndar og Biskupsstofu í samstarfi við ýmsa aðila.

Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu ritraðar um kirkjur Íslands ásamt Minjastofnun Íslands  og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Samstarfið hófst 2000. Þjóðminjavörður er fulltrúi Þjóðminjasafns Íslands í ritnefnd. Framlag Þjóðminjasafnsins er fólgið umfjöllun um kirkjustaði, kirkjur, þ.m.t. allar kirkjur í vörslu hússafns Þjóðminjasafns, kirkjugripi í öllum kirkjum og skráningu frumheimilda. Sérfræðingar safnsins eru meðal höfunda greina í ritröðinni og hafa ritað um kirkjustaði, kirkjur og kirkjugripi.

Ásamt Þjóðminjasafninu standa að útgáfunni Minjastofnun Íslands  og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Þjóðminjasafnið leggur fram myndefni í ritröðina úr fórum Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni. Ljósmyndari Þjóðminjasafns Ívar Brynjólfsson sér um nýjar myndatökur fyrir ritröðina og eru myndir Ívars grundvallarþáttur í útgáfu bókanna.

Með útgáfu ritraðarinnar hefur fengist mikilsverð heildarmyndar af einstökum menningararfi, og hefur verkefnið leitt til ítarlegrar skráningar og umfjöllunar sem verður grundvöllur þjóðminjavörslu, notkunar og fræðilegrar umfjöllunar. Lokabindi ritraðarinnar kom út árið 2018 og verður af því tilefni efnt til hátíðarsýninga í Þjóðminjasafni Íslands um friðaðar kirkjur og kirkjugripi.

Höfundur
Ýmsir
Útgáfuár
2000