Leiðsögn: Rúnir - ritmál í þróun

Á sunnudögum er boðið upp á sérfræðileiðsagnir í Þjóðminjasafni Íslands. Síðasta sunnudag hvers mánaðar er leiðsögn haldin á erlendu tungumáli.
Rúnaletur lifði góðu lífi í útskurði samhliða latneska stafrófinu í aldaraðir, en tók stakkaskiptum undir áhrifum þess síðarnefnda. Sunnudaginn 13. september kl. 14 mun Elís Þór Traustason leiða gesti í rúnaferðalag gegnum Þjóðminjasafnið. Fyrst verður stuttlega gert grein fyrir þróun rúnastafrófsins frá landnámi fram að siðaskiptum og síðan verða vel valdar rúnaristur á grunnsýningu safnsins skoðaðar.
Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og veitir þar með aðgang á alla viðburði og sýningar safnsins, gegn framvísun, í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.











