Thjodminjasafnid_Minjar-Saga
Vinafélag þjóðminjasafnsins

Minjar og saga, vinafélag Þjóðminjasafnsins, hefur starfað frá árinu 1988. Markmið þess er að styrkja starfsemi safnsins á ýmsan hátt og halda á lofti skilningi á mikilvægi þess að vel sé búið að helsta menningarsögulega safni þjóðarinnar.

Helstu verkefni vinafélagsins eru að leita leiða til að afla Þjóðminjasafninu merkra muna sem álitið er að best séu varðveittir í safninu vegna menningarsögulegs gildis þeirra.

Einnig greiðir félagið fyrir sérstökum rannsóknarverkefnum þar sem því verður við komið.

Félagið efnir til fyrirlestra fræðimanna um fornleifar og aðrar þjóðminjar. Jafnframt hefur það staðið fyrir skoðunarferðum undir leiðsögn sérfræðinga á merka menningarsögulega staði. Félagsgjaldið er 3.000 kr. á ári.

Í stjórn félagsins sitja þau Stefán Einar Stefánsson, Margrét Hallgrímsdóttir, Stefán Árni Auðólfsson, Kristján Garðarsson og Svanhvít Friðriksdóttir. Í varastjórn sitja Sverrir Kristinsson og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir.
Minjar og Saga

Viltu ganga í vinafélagið Minjar og Saga? Hér getur þú skráð þig.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.