Hvenær
Opið alla daga frá kl. 8 - 18
Hvar
Reykhólasveit

Á Stað í Reykhólasveit var á árum áður stórbýli og Ólafskirkja í kaþólskum sið. Prestssetur var á Stað fram til 1948 en var þá flutt að Reykhólum, þar sem áður hafði verið útkirkja frá Stað. Staðarkirkja var reist árið 1864 af Daníel Hjaltasyni gullsmið, hreppstjóra og bónda.

Staðarkirkja er lítið breytt frá upphaflegri gerð, með turni yfir vesturstafni. Dyraumbúnaður kirkjunnar er skrautlegur, beggja vegna dyra eru hálfsúlur með súlnahöfðum í einfölduðum samsettum stíl. Þetta er ein af fyrstu timburkirkjunum sem upphaflega var máluð, en ekki tjörguð, en tilheyrir þó eldri gerð kirkna með þakturni.

Illa var komið fyrir kirkjunni þegar ákveðið var að taka hana á fornleifaskrá árið 1964, rúum hundrað árum eftir að hún var reist. Yfirbyggingin var fúin og skæld, en steinhlaðin undirstaðan úr lagi gengin. Þjóðminjasafnið fékk Bjarna Ólafsson smið til viðgerða skömmu síðar og var kirkjunni þá lyft af grunni, undirstöðurnar voru styrktar og henni komið fyrir á nýjum undirstöðum. Veggirnir eru klæddir listasúð að utanverðu og á þaki er rennisúð.

Gert var við kirkjuna á ný á árunum 1992-1997.

Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar má nálgast hér:

PDF Icon

Gestir eru velkomnir á eigin ábyrgð. Vinsamlegast gangið vel um.

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.