Húsasafn
Klukknaportið á Möðruvöllum

Klukknaportið á Möðruvöllum er talið hafa verið reist um 1780. Það er hið eina sinnar tegundar sem varðveist hefur frá svo gamalli tíð en slík port voru algeng við kirkjur fyrr á öldum. Í portinu hanga þrjár klukkur og er sú elsta frá árinu 1769, sú næsta frá 1799 og sú yngsta er frá árinu 1867.
Til er lýsing af klukknaportinu frá árinu 1782 og virðist portið hafavarðveist í stórum dráttum í þeirri mynd sinni. Helsti munur á fyrstu gerð ogþeirri sem varðveist hefur er sá að upphaflega var á portinu sperruþak en er núásaþak og miðsyllur milli hornstafa eru þar ekki lengur. Undir lok 19. aldarvar hlaðið að því grjóti í stað torfs. Klukknaportinu hefur verið haldið viðmeð reglubundnum hætti á liðnum öldum og áratugum eftir því sem viðir í því hafa fúnað.
Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar má nálgast hér:


Portið hefur verið í umsjá Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1962 og hafa nokkrar stórar viðgerðir farið fram á því á vegum safnsins síðan.